Heimilin eiga enga undankomuleið gegnum skjaldborgina sem ríkisstjórnin hefur slegið um þau. Öll spjót standa á heimilunum og nú er enn þrengt að. Í stað þess að lækka neysluskatta (og þar með vísitöluna og lánin) eru þeir hækkaðir og 8 milljörðum sjálfkrafa bætt við skuldrnar (sem svo þarf að borga vexti af) og jafnframt smurt ofan á verðtryggðar innstæður fjármagnseiganda (sem töpuðu þeim í október en fengu þær að fullu bættar).
Öldungis frábært!
Ríkisstjórnin hefur fullan skilning á vanda heimilanna. Sjálfseignarstefnan, þ.e.a.s. sú stefna að fólk eigi sitt eigið húsnæði skal upprætt. Þá verður ekki lengur til sjálfstætt fólk. Þá þarf ekki heldur sjálfstæða þjóð.
Öreigarnir allir jafnir. Hinir ríku ríkari.
Það hefði verið heiðarlegra og skilvirkara að leggja 8 milljarða skatt á skuldara sem færu beint í ríkissjóð.
Ríkið fær 2,7 milljarða - lánin hækka um 8 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.